Forsíða
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Nýjar myndir í myndaalbúmi












Ferðaáætlun til áramóta 2010 - ferðanefnd PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Kim Mortensen   
sunnudagur, 25 júlí 2010
Ferðaáætlun ferðanefndar Fókus 1. ágúst til 31. desember 2010

Ágúst.

7. ágúst laugardagur, ljósmyndarölt. Gay Pride - Gleðigangan

Áætlaðri ljósmyndaferð 7. ágúst hefur verið breytt.Í staðinn fyrir að fara í Straum og Hvassahraun þá ætlum við að ljósmynda Gleðigönguna sem kölluð er réttu nafni Gay Pride. 
Hittumst á Hlemmi kl. 11.00 þó að gangan hefjist ekki fyrr en kl. 14.00.
Þannig gefst okkur gott tækifæri að ljósmynda undirbúninginn og leggja plön varðandi myndatökur í göngunni. 
Sú breyting er þetta árið að gangan byrjar núna frá Snorrabrautinni en ekki við Hlemm eins og fyrri ár.

Mætum sem flest. Þarna gefst frábært tækifæri að ljósmynda fólk í öllum regnbogans litum og áhorfendur.

27.- 29. ágúst. Síðsumars og haustferð.
Farið verður í Landmannalaugar, gisting verður að öllu óbreyttu í Hálendismiðstöðinni við Hrauneyjar.

September.

11. september laugardagur dagsferð. Hraunfossar og Húsafell.
Mæting við Select við Vesturlandsveg kl 08:30 brotttför kl 08:45

25. september laugardagur, myndarölt. Vatnsmýrin, Tjörnin og Miðbærinn.
Mæting við Norræna húsið kl 12:45 farið þaðann kl 13:00.

Október.

9. október laugardagur dagsferð. Reykjanes, Garður, Sandgerði, Hvalsnes og víðar.
Mæting við N1 við Reykjanesbraut í Hafnarfirði. kl 08:30 brottför þaðann kl 08:45

23. október laugardagur, myndarölt. Álafoss, og svæðið í nágrenni Reykjalundar.
Mæting við Álafoss kl 12:45 lagt af stað í röltið kl 13:00.

Nóvember.

6. nóvember laugardagur, dagsferð. Hvalfjörður.
Mæting við Select við Vesturlandsveg kl 08:30 brottför þaðann kl 08:45.

27. nóvember laugardagur, myndarölt. Fossvogskirkjugarður.
Mæting við Fossvogskirkjugarð kl 12:45 lagt af stað í röltið kl 13:00.

Desember.

11. desember laugardagur, jólarölt. Kirkjugarðurinn við Suðurgötu.
Mæting við Hólatorg kl. 12:45 lagt af stað í röltið 13.00

Þessi Dagskrá Ferðanefndar er með fyrirvara um breytingar sem getað orðið af ófyrirsjánlegum orsökum, hvað varðar Síðsumars og Haustferð verður hún kynnt sérstaklega í byrjun ágúst.

Með kveðju og óskum um gott myndasumar.

Ferðanefnd Fókus.

Aðalheiður Einarsdóttir. Heiða.

Varðandi helgarferðina í Landmannalaugar þá erum við búin að tryggja okkur pláss í Hálendimistöðinni með gistingu og skráning verður síðan eins og áður á netfangi Aðalheiðar. Nánari upplýsingar berast eftir Verslunarmannahelgi.

 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík