|
Ágætu Fókusfélagar.
Aðalfundur Fókus, félag áhugaljósmyndara, verður haldinn þriðjudaginn 25. maí 2010 og hefst hann kl. 20:00
Fundurinn er haldinn í félagsaðstöðu Fókus að Faxafeni 12.
Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til setu á aðalfundi.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
1) Ávarp formanns
2) Kjör fundarstjóra og fundarritara
3) Skýrsla stjórnar
4) Reikningar lagðir fram af gjaldkera
5) Umræður um skýrslu stjórnar og endurskoðaða reikninga
6) Reikningar bornir undir atkvæði
7) Lagabreytingar
8) Félagsgjöld ákveðin
9) Kosning stjórnar og skoðunarmanna.
10) Kosning ferðanefndar og sýninganefndar.
11) Önnur mál
Reykjavík, 11. maí 2010, fh. stjórnar
Kim Mortensen formaður Fókus
|