|
|
|
|
|
Fókusfundur 11. maí - fundarboð |
|
|
|
|
Skrifað af Kim Mortensen
|
|
föstudagur, 07 maí 2010 |
|
Næsti Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 11. maí og hefst hann kl. 20.00. Þið eru hvött til að mæta tímanlega fyrir fundinn.
Dagskrá fundar:
Í þetta skipti ætlum við að mæta með myndavélaranar okkar og stilla linsurnar eins og þær væru 50mm fastar linsur og förum svo út og tökum nokkrar fyrirfram ákveðin þema fyrir næsta klukkutímann. Endilega mætið með þrífót. Hafið í huga að brennivíddin útreiknuð á að vera 50mm. Það þýðir ekkert að mæta með 50mm fasta linsu á kroppmyndavél 1.6 það jafngildir 80mm.
Þeir sem eru með kropvélar 1,6 þurfa að stilla linsuna sína á 31.25 til að fá 50mm og festum við linsuna þar.
Þeir sem eiga fullframe myndavélar þurfa bara að stilla linsuna sína á 50mm eða mæta bara með eina slíka.
Og þeir sem eru með aðrar gerðir véla ættu að reyna hafa á hreinu hver margfeldistuðullinn er svo að það fari ekki á milli mála.
Þetta verður skemmtileg æfing í að vinna með faststillta linsu fyrir ákveðin verkefni.
Hlé.
Hugmyndin var að vera með myndasögu en það hefur verið hætt við hana í bili.
Þátttakendur í vorferð Fókus eru hvattir til að senda inn myndir sínar úr vorferðinni.
Þegar myndirnar ykkar eru tilbúnar sendið þær í tölvupósti á
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
myndirnar þurfa að vera í stærðinni 1024 pixlar á langhlið og í JPG formi og ekki meira en 4-5 myndir á mann.
Myndirnar þarf að senda í seinasta lagi mánudaginn 10. maí fyrir miðnætti.
Merkið myndirnar með nafni ykkar og nr.1-5 Dæmi: Jón 1.jpg, Jón 2.jpg .....Jón 5.jpg
Merkið einnig subject línuna í tölvupóstinum með „Fókus myndir“ þetta hjálpar við að flokka myndirnar í ákveðna möppu.
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega sendið þær á sama netfang og verður haft samband. Við förum svo yfir árangurinn á næsta Fókusfundi.
Umsjón fundar: Gunnlaugur Júlíusson |
|
|