Næsti Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 11. maí og hefst hann kl. 20.00. Þið eru hvött til að mæta tímanlega fyrir fundinn.
Dagskrá fundar:
Í þetta skipti ætlum við að mæta með myndavélaranar okkar og stilla linsurnar eins og þær væru 50mm fastar linsur og förum svo út og tökum nokkrar fyrirfram ákveðin þema fyrir næsta klukkutímann. Endilega mætið með þrífót. Hafið í huga að brennivíddin útreiknuð á að vera 50mm. Það þýðir ekkert að mæta með 50mm fasta linsu á kroppmyndavél 1.6 það jafngildir 80mm.
Þeir sem eru með kropvélar 1,6 þurfa að stilla linsuna sína á 31.25 til að fá 50mm og festum við linsuna þar.
Þeir sem eiga fullframe myndavélar þurfa bara að stilla linsuna sína á 50mm eða mæta bara með eina slíka.
Og þeir sem eru með aðrar gerðir véla ættu að reyna hafa á hreinu hver margfeldistuðullinn er svo að það fari ekki á milli mála.
Þetta verður skemmtileg æfing í að vinna með faststillta linsu fyrir ákveðin verkefni.
Hlé.
Hugmyndin var að vera með myndasögu en það hefur verið hætt við hana í bili.