|
Sjálfsmynd – gerðu öðruvísi mynd af þér!
Búðu til einhverja ímynd og notaðu sjálfan þig sem myndefni.
Dæmi: spæjari, mafíós, ljóska, skáld
Settu upp töffara, cool, grimmdar eða eitthvað annan svip og taktu mynd.
Eða taktu bara mynd af þér – hafðu hana bara öðruvísi en.
Aðalatriðið er að hugsa, skapa, fara út fyrir þægindamörkin, prófa, vera með og hafa gaman af . Þetta á að vera skemmtilegt.
Þegar myndirnar ykkar eru tilbúnar sendið þær í tölvupósti á
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
myndirnar þurfa að vera í stærðinni 1024 pixlar á langhlið og í JPG formi og ekki meira en 4-5 myndir á mann.
Myndirnar þarf að senda í seinasta lagi mánudaginn 29. mars fyrir miðnætti.
Merkið myndirnar með nafni ykkar og nr.1-5
Dæmi: Jón 1.jpg, Jón 2.jpg .....Jón 5.jpg
Merkið einnig subject línuna í tölvupóstinum með „Fókus myndir“ þetta hjálpar við að flokka myndirnar í ákveðna möppu.
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega sendið þær á sama netfang og verður haft samband. Við förum svo yfir árangurinn á næsta Fókusfundi.
Dæmi um sjálfsmyndir:
http://www.fotosidan.se/pools/view/11364.htm
http://www.flickr.com/groups/614955@N21/
http://www.flickr.com/groups/ego-trippers/pool/show/
Kveðja Friðrik |