Forsíða arrow Gagnasafn arrow Almennar fréttir arrow Fókusfundur 16. mars - fundarboð
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Fókusfundur 16. mars - fundarboð PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Kim Mortensen   
föstudagur, 12 mars 2010

 

Næsti Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 16. mars og hefst hann kl. 20:00.

Dagskrá fundar:

Fjallað verður um Stafræna list öðru nafni Digital art.
Ólöf Erla sýnir okkur myndir og hvernig þær eru gerðar með þessari tækni. Hvað er framundan hjá henni og líka eitthvað um þessa tegund af ljósmyndun.

Umsögn um Ólöfu:

„Þetta eru ljósmyndir sem ég tek. Bara hráar. Svo klippi ég þær út og vinn bak- grunninn og öll element þar til ég er sátt við söguna sem ég er að segja þannig að þetta verði ævintýralegt," sagði Ólöf Erla í viðtali í tilefni af opnun sýningarinnar. Með því að setja saman ótal ljósmyndir og vinna þær áfram með hjálp tölvutækninnar hefur Ólöfu Erlu tekist að skapa einstakan ævintýraheim. Yfir myndunum hvílir heillandi dulúð. Þær eru sögur án orða. Áhorfandinn getur gefið ímyndunarafli sínu lausan tauminn og skapað sínar eigin sögur við myndir hennar.
Hérna er heimasíðan hennar:

http://oloferla.com/

Hlé

Eftir hlé sýnum við myndir úr Vetrarmessu ferð Fókus.
Þið eruð hvött til að senda 4-5 myndir að hámarki hver úr Vetrarmessu ferðinni.

Þegar myndirnar ykkar eru tilbúnar sendið þær í tölvupósti á Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það myndirnar þurfa að vera í stærðinni 1024 pixlar á langhlið og í JPG formi og ekki meira en 4-5 myndir á mann.

Myndirnar þarf að senda í seinasta lagi mánudaginn 15. mars fyrir miðnætti.

Merkið myndirnar með nafni ykkar og nr.1-5 Dæmi: Jón 1.jpg, Jón 2.jpg .....Jón 5.jpg

Merkið einnig subject línuna í tölvupóstinum með „Fókus myndir“ þetta hjálpar við að flokka myndirnar í ákveðna möppu.

Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega sendið þær á sama netfang og verður haft samband. Við förum svo yfir árangurinn á næsta Fókusfundi.“

Umsjón fundar: Friðrik Þorsteinsso

slóðir:

Stafræn list - Digital art

Stafræn list vegfóður - Digital art wallpaper

 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík