Næsti Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 16. mars og hefst hann kl. 20:00.
Dagskrá fundar:
Fjallað verður um Stafræna list öðru nafni Digital art.
Ólöf Erla sýnir okkur myndir og hvernig þær eru gerðar með þessari tækni. Hvað er framundan hjá henni og líka eitthvað um þessa tegund af ljósmyndun.
Umsögn um Ólöfu:
„Þetta eru ljósmyndir sem ég tek. Bara hráar. Svo klippi ég þær út og vinn bak- grunninn og öll element þar til ég er sátt við söguna sem ég er að segja þannig að þetta verði ævintýralegt," sagði Ólöf Erla í viðtali í tilefni af opnun sýningarinnar. Með því að setja saman ótal ljósmyndir og vinna þær áfram með hjálp tölvutækninnar hefur Ólöfu Erlu tekist að skapa einstakan ævintýraheim. Yfir myndunum hvílir heillandi dulúð. Þær eru sögur án orða. Áhorfandinn getur gefið ímyndunarafli sínu lausan tauminn og skapað sínar eigin sögur við myndir hennar.
Hérna er heimasíðan hennar:
http://oloferla.com/
Hlé
Eftir hlé sýnum við myndir úr Vetrarmessu ferð Fókus. Þið eruð hvött til að senda 4-5 myndir að hámarki hver úr Vetrarmessu ferðinni.
Myndirnar þarf að senda í seinasta lagi mánudaginn 15. mars fyrir miðnætti.
Merkið myndirnar með nafni ykkar og nr.1-5 Dæmi: Jón 1.jpg, Jón 2.jpg .....Jón 5.jpg
Merkið einnig subject línuna í tölvupóstinum með „Fókus myndir“ þetta hjálpar við að flokka myndirnar í ákveðna möppu.
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega sendið þær á sama netfang og verður haft samband. Við förum svoyfir árangurinn á næsta Fókusfundi.“