Forsíða arrow Gagnasafn arrow Almennar fréttir arrow Margbreytilegt veður í Fókus
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Margbreytilegt veður í Fókus PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Helgi Bjarnason   
þriðjudagur, 02 mars 2010
Átjánda ljósmyndasýning ljósmyndafélagsins Fókuss, "Veður í Fókus", var opnuð í Norræna húsinu mánudaginn 1. mars. Sýningin stendur uppi til 15. mars.

Á sýningunni eru ljósmyndaverk eftir 32 félagsmenn. Aldrei í sögu félagsins hafa fleiri tekið þátt í sýningu.

Hver félagsmaður sýnir eina mynd sem tengist veðri og þar kemur fram fjölbreytileiki íslensks veðurfars.

Fjölmenni var í Norræna húsinu á mánudagskvöld þegar Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi Stormur, veðurfréttamaður á Skjá einum, setti sýninguna. Eftirtaldir félagar taka þátt í Veðursýningunni:

Aðalheiður Einarsdóttir, Árný Björk Jóhannsdóttir, Ástríður Eymundsdóttir, Eiríkur Á. Sigurðsson, Eiríkur Þór Sigurbjörnsson, Elín Þórðardóttir, Ester Gísladóttir, Friðrik Þorsteinsson, Georg Theodórsson, Guðmar Guðjónsson, Guðmunda Jónsdóttir, Gunnlaugur Júlíusson, Helga Björnsdóttir, Helga Jörgensen, Helgi Bjarnason, Ingibjörg Óskarsdóttir, Jóhanna Höskuldsdóttir, Jón Þorgrímsson, Kim Mortensen, Kristín Sigurgeirsdóttir, Kristján Sigurjónsson, Margrét Auðunsdóttir, Margrét Sigurðardóttir, Óskar Ingi Gíslason, Páll Jökull Pétursson, Rafn Sigurbjörnsson, Sigurður Jónsson, Sæþór L. Jónsson, Valdimar Jónsson, Valgerður Rúnarsdóttir, Þorsteinn Narfason, Þórdís Björnsdóttir.

Sýninganefnd Fókuss undirbjó sýninguna með aðstoða félaga. Guðmunda Jónsdóttir er formaður nefndarinnar og með henni eru Árný Björg Jóhannsdóttir og Hartvig I. Ingólfsson.
 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík