Forsíða arrow Gagnasafn arrow Almennar fréttir arrow Fókusfundur 2. mars - fundarboð
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Fókusfundur 2. mars - fundarboð PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Kim Mortensen   
sunnudagur, 28 febrúar 2010

Næsti Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 2. mars og hefst hann kl. 20:00.

Dagskrá fundar:

Nú ætlum við að breyta svolítið til og vera með fjögur örnámskeið.

Nú er bara að velja það örnámskeið sem ykkur finnst áhugaverðast.

Salnum verður skipt upp í fjóra hluta.

1. Guðmunda Jónsdóttir ætlar fjalla Flicker og allt því tengt. Fyrir þá sem ekki vita það þá er Fókus með hóp (grúppu) á Flicker.

2. Gunnlaugur Júlíusson ætlar að fjalla um útgáfu ljósmyndabóka með aðstoð Blurb útgáfuforrits á netinu. Segir hann frá kostnaði og öðrum möguleikum á netinu og hér heima. Þarf varla að taka það fram að síðasta árbók Fókus var einmitt unnin í Burb forritinu.

3. Páll Jökull Stefánsson ætlar að fjalla um hvernig eigi að nota meiri tíma til þess að taka myndir heldur en að vinna í Photoshop. Farið yfir helstu atriði varðandi myndavélina, allar helstu stillingar, skoðuð dæmi og umræður um þau. Farið í útimyndatöku að nóttu og degi, fjörumyndir, norðurljós, helstu vandamál og lausnir, hvernig á að brjóta "reglurnar", sölulegar myndir og fleira.

4. Kim Mortensen ætlar að fjalla um Lightroom2 og vinnuferlið sem hann er að nota, lyklun mynda og aðrir möguleikar sem í boði eru.

Hlé

Eftir hlé verður haldið áfram þar sem frá var horfið.

Spurningar og svör um það sem ykkur dettur í hug varðandi um viðeigandi umfjöllunar efni verður tekið fyrir eftir hlé.

Umsjón fundar:

Sigurður Pétursson

Friðrik Þorsteinsson

Kim Mortensen

 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík