|
Vetramessa Fókus 12.-14. mars 2010
Borgarfjörður og Mýrar
Mæting við Select Vesturlandsvegi kl: 18:15 lagt af stað kl: 18:30
Gisting er í Ensku húsunum við Langá á Mýrum.
Á laugardeginum verður byrjað að mynda í nágrenni Ensku húsanna; fossar, flúðir og fjaran við Langá. Síðan haldið í hringferð um Álftanes með viðkomu í Straumfirði, Álftarósi og fleiri stöðum. Um kvöldið verður grillað og kvöldvaka á eftir með fræðsluefni og spjalli.
Á sunnudeginum verður ekið að Hraunfossum um Hvítársíðu, einhver myndastopp verða á þeirri leið. Þaðan verður haldið heim á leið um Borgarfjarðarbraut með tilheyrandi myndastoppum t.d. við Deildartunguhver.
Ferðinni lýkur við Select Vesturlandsvegi kl: 17:30-18:00.
Það sem þarf að hafa með fyrir utan ljósmyndagræjur:
Sængur og koddar eru á staðnum. Hafa þarf meðferðis sængurver, koddaver, lak og handklæði.
Matur: Hver og einn sér um sinn mat sjálfur.
Grillað verður á laugardagskvöldinu
Áætlaður ferðakostnaður, þ.e. gisting og eldsneyti, er:
miðað við 10 manns 12.000.-, miðað við 12 manns 9.900.-, miðað við 15 manns 9.400.-, o.s.frv.
Staðfestingargjald er 8.000.- og er óafturkræft.
Leggist inn á reikning nr. 0130-26-104519 fyrir fyrir 5. mars n.k.
Kennitala: 100537-4519
Staðfesting greiðslu sendist á netfang:
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
með nafni viðkomandi.
Við borgum fast gjald fyrir gistinguna, 80.000.- (tvær nætur).
Þema ferðarinnar verður: Nátttúran, kirkjur, brýr og hús (heilleg og hrörleg).
Skráning í ferðina er hjá Helgu Jörgensen netfang:
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
.
Síðasti skráningardagur er 5. mars.
Athugið:
- að dagskrá ferðarinnar gæti breyst vegna veðurs eða ófyrirsjáanlegra aðstæðna.
- hver og einn fer á sína eigin ábyrgð í ferðina.
Ferðanefnd Fókus |