|
Töfrar stafrænnar myndvinnslu |
|
|
|
|
Skrifað af Kim Mortensen
|
|
fimmtudagur, 04 febrúar 2010 |
„Töfrar stafrænnar myndvinnslu
- góð ráð og gjörningar“
fyrir lærða sem leikna
|
|
Opinn fyrirlestur Einars Erlendssonar, ljósmyndafræðings, um ýmiss grunnlögmál stafrænnar ljósmyndunar, áhugverðar lausnir og ekki síst leiðir til að auðvelda allt vinnsluferli frá myndatöku til vistunar og notkunar.
|
Laugardaginn 6. febrúar kl 14.
Sal Laugalækjarskóla, Leirulæk 2, 105 Reykjavík
Aðgangur ókeypis
Um leið mun Einar kynna röð námskeiða sem verða í boði í febrúar og fram í apríl. Námskeiðin taka mið að þvi að þátttakendur séu mislangt komnir í myndatöku, vistun, skráningu, vinnslu og miðlun stafrænna ljósmynda.
Einnig mun liggja frammi spurningalisti um hvað áheyrendur kjósa helst að geta lært og verður tekið tillit til niðurstöðu þeirrar könnunar við að fínpússa námskeiðin framundan.
Námskeiðin verða svo birt á vefnum þriðjudaginn 9. febrúar og geta þeir sem hafa áhuga skráð sig á námskeið á vefnum. Takmarkaður fjöldi er á hvert námskeið.
|
|