|
Árbókarfundur 10. nóvember - fundarboð |
|
|
|
|
Skrifað af Kim Mortensen
|
|
mánudagur, 09 nóvember 2009 |
|
Sælir Félagar
Nú eru allir búnir að tilkynna þátttöku sína sem ætla að vera með í Árbók Fókus 2009 og senda myndir sínar og upplýsingar. Aðeins örfáir eiga eftir að bæta við nýrri sjálfsmynd eða umbeðnar upplýsingar. Eru þeir hinir sömu hvattir til að gera skil hið fyrsta.
Búið er að setja upp Árbókina og ætlum við að fara yfir árangurinn næsta þriðjudag 10. nóvember í Faxafeni 12 í húsnæði Skákfélags Reykjavíkur kl. 20.00 á sýningartjaldi félagsins. Ef einhverjar athugasemdir berast þá verður tekið fullt tillit til þeirra og lagað það sem laga þarf.
Þá sem vantar góða sjálfsmynd geta einnig mætt í myndatöku og ætlar Kristján Einar Einarsson að mæta með ljós og bakgrunna og bæta úr því fyrir þá sem það vilja.
Met þátttaka er í Árbók Fókus 2009 en þátttakendur eru 40 einstaklingar. Nú er bara mæta því að nú eru síðustu forvöð að breyta bókinni ef þarf.
Einnig getið þið lagt inn pöntun á aukaeintökum af Árbókinni ef þið viljið. Pantanir á aukaeintökum þurfa að greiðast fyrir 15. Nóvember og greiðið þið að sjálfsögðu ykkar eintak með. Annars þarf að greiða Árbókina í síðasta lagi fyrir 4. desember. 2009 ef þið ætlið að fá hana afhenta. Árbókin verður aðeins afhent skuldlausum félögum.
Bókin verður send til prentunar í síðasta lagi 15.nóvember 2009.
Fyrir hönd Árbókarnefndar
Kveðja
Kim Mortensen |