|
Næsti Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 3. nóvember og hefst hann kl. 20:00.
Dagskrá fundar:
Friðrik Þorsteinsson ætlar að segja okkur frá kantskurði, hvernig bera skal sig að og hvað skal varast. Efnistök og annað viðeigandi.
Hlé
Eftir hlé skoðum við innsendar myndir félagsmanna.
Myndir af eggjum en þið eru hvött til taka myndir af eggjum í hvaða formi sem er. 1-3 myndir á mann.
Einnig ætlum við að skoða myndir úr Ljósmyndaferð Fókusfélaga sem við kölluðum Vogar og eyðibýli, hæfilegt magn 1-3 myndir á mann.
Myndirnar þarf að senda í seinasta lagi mánudaginn 2. nóvember fyrir miðnætti.
Merkið myndirnar ykkar með nafni ykkar og nr.1-5
Dæmi: Jón 1.jpg, Jón 2.jpg .....Jón 5.jpg
Merkið einnig subject línuna í tölvupóstinum með „Fókus myndir“ þetta hjálpar við að flokka myndirnar í ákveðna möppu.
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega sendið þær á sama netfang og verður haft samband. Við förum svo yfir árangurinn á næsta Fókusfundi.“
Umsjón fundar: Vala Rún
Nú fer að styttast í lokaskil fyrir Árbók Fókus og eruð þið hvött til að ská ykkur undir þræðinum „Árbók Fókus – þátttaka“ á spjalli Fókus.
Loka skil eru laugardaginn 7. nóvember á miðnætti. Eftir því sem myndir ykkar skila sér fyrr þá auðveldar það Árbókarnefndinni að undirbúa Árbókina.
Kveðja
Árbókarnefndin |