Forsíða
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Nýjar myndir í myndaalbúmi












Árbók Fókus 2009 - undirbúningur PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Kim Mortensen   
mánudagur, 26 október 2009
Ágætu Fókusfélagar
 
Árið 2009 verður Árbók Fókus gefin út í 10.sinn. Ákveðið hefur verið af Árbókarnefnd að breyta til um vinnuaðferð við gerð bókarinnar frá fyrri árum. Í stað þess að líma myndir á karton og gorma það saman í bók verður árbókin nú sett upp í BLURB forritinu á vefnum (www.blurb.com).

Forritið virkar þannig að myndabókin er sett upp í BLURB forritinu, formið síðan sent til Bandaríkjanna á vefnum og gefinn upp sá fjöldi bóka sem óskað er eftir. Þær koma síðan með pósti eftir ca 3 vikur frá pöntun bókar.
Verð bókarinnar er áætlað kr. 3500 kr. á bók.
 
Árbókin verður í forminu 18 x 18 cm, harðspjaldabók með kápu. Stærð hennar (blaðsíðnafjöldi) ræðst síðan eftir fjölda þátttakenda. Hver þátttakandi fær eina opnu í bókinni. Önnur síðan er ætluð fyrir mynd af myndasmiðnum, almennar upplýsingar um myndina, hvar hún er tekin og eða hvers vegna og síðan tæknilegar upplýsingar um myndavél og stillingar. Myndin verður svo á hinni síðunni.
 
Myndum skal skila í sRGB litarýmd og skal miðað við 300 pk (DPI) prentupplausn.
Mynd má vera ferköntuð eða landscape/portrett.
Ferköntuð mynd skal vera að lágmarki 1838 x 1838 pixlar og 300 pk (DPI) prentupplausn .
Landscape/portrett mynd skal vera að lágmarki 1838 pixlar á langhlið og 300 pk (DPI) prentupplausn.
 
Einungis má senda inn eina mynd. Mynd má ekki vera með ramma né neitt skrifað á hana.
 
Sjálfsmynd myndasmiðs skal vera að lágmarki 467 x 692 pixlar í 300 pk (DPI) prentupplausn. Vanda skal gæði sjálfsmyndar.
 
Upplýsingar sem þurfa að fylgja mynd:
 
Nafn myndar
Umsögn um mynd skal vera að hámarki 540 stafir (slög).
Textalínan er 90 stafir, 6 línur að hámarki.
 
Tæknilegar upplýsingar:
Höfundur:
Tegund myndavélar:
Linsa:
Hraði:
Ljósop:
ISO:
EV:
Dagsetning myndatöku:
 
Athugið að ef það er eitthvað tæknilegt sem þið viljið hafa með en er ekki á þessum lista þá bætið því við og við munum hafa það með ef pláss leyfir.
 
Mynd skal skilað í síðasta lagi laugardaginn 7. nóvember fyrir miðnætti. Þeir sem ekki skila mynd og upplýsingum fyrir tilskilinn tíma missa eðlilega af lestinni.
Bókin verður síðan sett upp af okkar mönnum og munum við síðan hittast Þriðjudaginn 10. nóvember í Faxafeni 12 kl. 20.00 og skoða bókina í sameiningu. Ef einhverjar villur reynast í bókinni eða eitthvað sem þarf að laga þá er þarna tækifæri á því að fara yfir það.
Mögulegt er að panta fleiri en eina árbók en þá þarf að greiða þær fyrirfram, fyrir 15. nóvember. Vinsamlegast látið Árbókar nefnd vita ef þið viljið fleiri en eitt eintak með tölvupósti.
 
Skil myndar, sjálfsmyndar og upplýsingar er hægt að koma til okkar á netfangi Kims í síðasta lagi 7. Nóvember fyrir miðnætti. Hvetjum við ykkur að senda okkur þessar upplýsingar í fyrra falli frekar en að geyma þetta þangað til á síðustu stundu.
 
Endilega tilkynnið þátttöku ykkar í spjalli Fókusfélaga undir liðnum ”Árbók Fókus – þátttaka:” Þannig getum við öll áttað okkur á því hversu margir verða hugsanlega með.
 
Ef eitthvað er óljóst eða þið þurfið einhverja aðstoð þá endilega sendið okkur tölvupóst á netföngin okkar eða verið í sambandi:
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 
Árbókar kveðjur
 
Árbókar nefndin
Gunnlaugur Júlíusson
Kristján Einar Einarsson

Sýnishorn lárétt:

Sýnishorn lárétt

Sýnishorn lóðrétt:

Sýnishorn lóðrétt:

Sýnishorn ferkantað:

 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík