Forsíða arrow Gagnasafn arrow Almennar fréttir arrow Fókusfundur 20. október - fundarboð
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Fókusfundur 20. október - fundarboð PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Kim Mortensen   
laugardagur, 17 október 2009

Næsti Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 20. október og hefst hann kl. 20:00.

Dagskrá fundar:

Bingó í Faxafeni, kynning á  verkefninu EGG og Árbók Fókus

Núna ætlum við að breyta til og hafa Bingókvöld.

Skemmtinefndin er búin að vinna hörðum höndum við undirbúning kvöldsins.Heyrst hefur að vinningar séu stórglæsilegir og sumir einstakir.

Þetta er kvöldið sem enginn  má missa af.

Kynning á verkefninu EGG.

Í þessu verkefni á að mynda egg.  Egg er eitthvað sem flestir eiga í ísskápnum heima.

Það má gera hvað sem er við það:  Mála, brjóta ,steikja, sjóða, brytja, henda, kasta og svo framvegis.
Aðalatriðið er að það sé egg á myndinni (í hvað formi sem er). Nú er að ná sér í egg, fara að hugsa og skapa. Það er allt frjálst og allt leyfilegt. 1-3 myndir á mann.
 
Myndirnar skilist til Kim fyrir 1. nóvember fyrir miðnætti og förum síðan yfir árangurinn á Fókusfundi 3. Nóvember.
 
Árbók Fókus kynning
 
Einnig ætlum við að kynna Árbók Fókus og nýtt fyrirkomulag í útgáfu hennar, en núna verður Árbókin með breyttu sniði.
 
Umsjón fundar: Skemmtinefndin.
 
Ath. að fundurinn gæti  orðið lengri en hin hefðbundnu 2 tíma mörk.
 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík