|
Fókusfundur 22. september - fundarboð |
|
|
|
|
Skrifað af Kim Mortensen
|
|
laugardagur, 19 september 2009 |
|
Næsti Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 22. september og hefst hann kl. 20:00.
Dagskrá fundar:
Jón Páll Vilhelmsson ljósmyndari segir frá sínum ferli og ræðir um landlagsljósmyndun.
Heimasíða Jóns Páls
Hlé
Eftir hlé skoðum við innsendar myndir landlags og réttarmyndir félagsmanna.
Þegar myndirnar ykkar eru tilbúnar eruð þið hvött til þess að senda þær í tölvupósti á
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
myndirnar þurfa að vera í stærðinni 1024 pixlar á langhlið og í JPG formi og ekki meira en 4-5 myndir á mann.
Myndirnar þarf að senda í seinasta lagi mánudaginn 21. september fyrir miðnætti.
Merkið myndirnar ykkar með nafni ykkar og nr.1-5
Dæmi: Jón 1.jpg, Jón 2.jpg .....Jón 5.jpg
Merkið einnig subject línuna í tölvupóstinum með „Fókus myndir“ þetta hjálpar mér að flokka myndirnar í ákveðna möppu.
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega sendið þær á sama netfang og verð ég í sambandi. Við förum svo yfir árangurinn á næsta Fókusfundi.
Umsjón fundar: Filippus Jóhannsson |