|
|
|
|
|
DVD kvöld nr. 6 - fókusfundur |
|
|
|
|
Skrifað af Kim Mortensen
|
|
mánudagur, 24 ágúst 2009 |
|
Óformlegur félagsfundur Fókus sem ég kýs að kalla DVD kvöld verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 25. ágúst og hefst hann kl. 20:00.
Fyrir þá sem hafa áhuga á því að kíkja á sjötta þátt af 6 þáttum sem BBC gaf út undir nafninu "The Genius of Photography" þá er um að gera að líta við á þriðjudaginn.
Þetta er um 1 klst. efni ótextað en farið er í sögu ljósmyndunar frá upphafi til nútímans í 6 þáttum.
Í þessum þætti erum við kominn í nútímann og er fjallað um hvernig ljósmyndir hafa öðlast söfnunargildi hjá ljósmynda söfnurum. Hvernig sumir hugsa stórt í myndum sínum bæði í verði og stærð. Ljósmyndun nútímans er loka umræðan í þessum þætti.
Lýkur nú þessum DVD kvöldum í bili að minnsta kosti aldrei að vita hvað við gerum síðar.
Einnig hvet ég ykkur að taka myndavélina ykkar með og sjáum til hvort við höfum ekki eitthvert gagn og gaman af því.
DVD Kveðja
Kim Mortensen
|
|
|