|
|
|
|
|
DVD kvöld nr. 5 - fókusfundur |
|
|
|
|
Skrifað af Kim Mortensen
|
|
mánudagur, 17 ágúst 2009 |
|
Óformlegur félagsfundur Fókus sem ég kýs að kalla DVD kvöld verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 18. ágúst og hefst hann kl. 20:00.
Fyrir þá sem hafa áhuga á því að kíkja á fimmta þátt af 6 þáttum sem BBC gaf út undir nafninu "The Genius of Photography" þá er um að gera að líta við á þriðjudaginn.
Þetta er um 1 klst. efni ótextað en farið er í sögu ljósmyndunar frá upphafi til nútímans í 6 þáttum.
Í þessum þætti teknir fyrir ljósmyndarar sem beina myndavélinni að sjálfum sér og nánasta fólkinu umhverfis þá. Breyttu þannig pesónulegum samskiptum sínum í ljósmyndir, oft á tíðum ögrandi og umdeildar myndir.
Þema þáttarins er "We are family".
Einnig hvet ég ykkur að taka myndavélina ykkar með og sjáum til hvort við höfum ekki eitthvert gagn og gaman af því.
DVD Kveðja
Kim Mortensen
|
|
|