Forsíða arrow Gagnasafn arrow Almennar fréttir arrow DVD Kvöld nr. 4 - fókusfundur
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
DVD Kvöld nr. 4 - fókusfundur PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Kim Mortensen   
fimmtudagur, 06 ágúst 2009
Óformlegur félagsfundur Fókus sem ég kýs að kalla DVD kvöld verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 11. ágúst og hefst hann kl. 20:00.

Fyrir þá sem hafa áhuga á því að kíkja á fjórða þátt af 6 þáttum sem BBC gaf út undir nafninu "The Genius of Photography" þá er um að gera að líta við á þriðjudaginn.

Þetta er um 1 klst. efni ótextað en farið er í sögu ljósmyndunar frá upphafi til nútímans í 6 þáttum.

Í þessum þætti er þemað "Götuljósmyndun" fram til dagsins í dag, en margir þeirra sem nefndir eru áttu sín bestu ár 1950-1960. Einnig er mikið talað um hvernig ljósmyndarar lögðust í ljósmyndaferðir langar eða stuttar.

Einnig hvet ég ykkur að taka myndavélina ykkar með og sjáum til hvort við höfum ekki eitthvert gagn og gaman af því.

DVD Kveðja
Kim Mortensen
 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík