Forsíða arrow Gagnasafn arrow Almennar fréttir arrow Hundrað röltu í sumar
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Hundrað röltu í sumar PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Helgi Bjarnason   
laugardagur, 04 júlí 2009
Lokið er sumarrölti, kvöldgöngum sem ferðanefnd Fókuss efndi til í sumar. Gengið var sex kvöld um nokkur hverfi höfuðborgarsvæðisins, yfirleitt með leiðsögn Fókusfélaga sem uppalinn er í hverfinu.

Þátttaka var góð. 97 tóku þátt í heildina. Áhuginn var mismunandi, frá 11 til 27. Röltið um Laugarneshverfið með Hilmari Snorrasyni sló öll met. 27 tóku þátt og er það mesta þátttaka í ferð sem félagið hefur skipulagt og upplýsingar eru skráðar um.

Kvöldgöngurnar hafa nú verið í þrjú ár og stígandi verið í þátttöku. Þannig gengu 34 í fjórum ferðum 2007, 51 í jafnmörgum göngum 2008 og 97 í sex skipti 2009. Meðaltalið í hverri göngu hefur tvöfaldast á þessum tíma, úr rúmlega átta í sextán.

Helga Jörgensen tók myndina í Kópavogsröltinu. Þarna er verið að gera upp veiðarfæri í Barmahlíð.

Næsta ferð sem ferðanefnd hefur skipulagt er haustferðin. Farið verður til Vestmannaeyja 28. til 30. ágúst.
 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík