|
Skrifað af Helgi Bjarnason
|
|
fimmtudagur, 25 júní 2009 |
Ljósmyndasýningin "Allt í Fókus" gekk vel. Mikil ánægja var hjá gestum og sýnendum og aðsókn geysilega góð. Sýningin var haldin í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur dagana 6. til 21. júní.
Prentaðar voru 1000 sýningarskrár og fór megnið af þeim. Páll Jökull Pétursson, formaður fráfarandi sýninganefndar sem undirbjó og sýninguna og kom í framkvæmd, segir að ef miðað er við að einn af hverjum fjórum hafi tekið með sér sýningarskrá megi áætla að hátt í fjögur þúsund manns hafi skoðað sýninguna. Hann hefur þó tilfinningu fyrir því að þeir hafi verið mun fleiri þar sem fjöldi erlendra ferðamanna skoðaði sýninguna og þeir komu oft í hópum.
"Ég tel að þessi sýning hafi verið félaginu til sóma á 10 ára afmælisári þess," segir Páll Jökull.
|