Forsíða arrow Gagnasafn arrow Almennar fréttir arrow Sumarrölt og sýning
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Sumarrölt og sýning PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Helgi Bjarnason   
sunnudagur, 31 maí 2009
Þótt Fókusfundir séu ekki haldnir yfir sumarmánuðina er ýmislegt um að vera hjá félaginu í sumar. Sýningin "Allt í Fókus" verður í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í júní. Þá verður verður framhald af kvöldgöngum sem hófust í maí og verður sumarröltið á þriðjudagskvöldum út júnímánuð. Ljósmyndarölt Fókus - Vesturbæ Reykjavíkur

Helstu atburðir í í sumar, sem þegar hafa verið ákveðnir:

Ljósmyndasýningin "Allt í Fókus" í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur dagana 6. til 21. júní.

2. júní, sumarrölt, Kópavogur með Helgu Jörgensen.
9. júní, sumarrölt, Laugarnesið með Hilmari Snorrasyni.
16. júní, sumarrölt, Vogarnir í Reykjavík með Georg Theodórssyni.
23. júní, sumarrölt, Seltjarnarnes.
30. júní, sumarrölt, Grasagarðurinn í Laugardal.
Fókusfélagar geta boðið með sér gestum í kvöldgöngurnar.

28. -30. ágúst, áformuð haustferð, Vestmannaeyjar.

Fókusvefurinn tekur ekkert sumarfrí og eru félagar hvattir til að halda við myndaalbúmum sínum, gefa umsagnir og stjörnur og vera frjóir á spjallinu.

Myndina tók Kim Mortensen í fyrsta sumarröltinu, við verkamannabústaðina við Hringbraut.
 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík