|
Blik með sína fyrstu ljósmyndasýningu |
|
|
|
|
Skrifað af Helgi Bjarnason
|
|
miðvikudagur, 20 maí 2009 |
Ljósmyndaklúbburinn Blik á Suðurlandi heldur sína fyrstu ljósmyndasýningu um helgina. Sýningin verður opnuð formlega kl. 11 á uppstigningardag og er svo opin frá klukkan 13 til 17 til sunnudagsins 24. maí. Á sýningunni eru 57 myndir eftir 21 félagsmann. Í klúbbnum eru nokkrir Fókusfélagar, núverandi og fyrrverandi. Guðmar Guðjónsson, Eiríkur Þór Sigurjónsson, Guðjón Guðvarðarson, Sölvi Ragnarsson, Jónas Erlendsson og Ragnar Magnússon eru meðal sýnenda.
Sýningin heitir Vor og er liður í hátíðinni Vor í Árborg. Hún er í húsi við Austurveg 35 til 37 á Selfossi.
Blik fagnar eins árs afmæli sínu um þessar mundir. Starfsemin hefur verið öflug þetta ár, fræðslufundir eru haldnir og félagsmenn fara saman í ljósmyndaferðir.
Á myndinni er sýningarnefndin, Fjóla Dögg, Ragnar Magnússon formaður Bliks og Monika Teresa.
|