Forsíða arrow Gagnasafn arrow Almennar fréttir arrow Nýr formaður Fókuss
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Nýr formaður Fókuss PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Helgi Bjarnason   
þriðjudagur, 12 maí 2009

Kim Mortensen var kjörinn nýr formaður ljósmyndafélagsins Fókuss á aðalfundi sem haldinn var í kvöld. 

Hann tók við að Pálma Guðmundssyni sem stofnaði félagið fyrir tíu árum og hefur verið formaður frá upphafi. 

Pálma voru þökkuð góð störf í þágu félagsins og hann fékk þann heiður að taka í notkun nýtt og vandað sýningartjald sem félagið hefur fest kaup á.

Með Kim í stjórn eru Valgerður Rúnarsdóttir ritari, Gunnlaugur Júlíusson gjaldkeri, Friðrik Þorsteinsson meðstjórnandi og Sigurður Pétursson meðstjórnandi. 

Friðrik og Sigurður koma í stað Pálma og Hauks Gunnarssonar sem ekki gáfu kost á sér til endurkjörs.

Ferðanefnd félagsins var endurkjörin. Hana skipa Helga Jörgensen, Filippus Jóhannsson og Aðalheiður Einarsdóttir, og Georg Theodórsson til vara. 

Guðmunda Jónsdóttir heldur áfram í sýningarnefnd og með henni eru Árný Jóhannsdóttir og Hartvig Ingólfsson og Sæþór L. Jónsson til vara.

Kosið var í ýmis önnur embætti og þeirra verður getið í fundargerð sem vonandi kemur fljótlega inn á vefinn.

Stjórnir og embætti
 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík