|
Fókusfundur 28. apríl - fundarboð |
|
|
|
|
Skrifað af Kim Mortensen
|
|
sunnudagur, 26 apríl 2009 |
|
Næsti Fókusfundur verður haldinn í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur, þriðjudaginn 28. apríl og hefst hann kl. 20:00.
Dagskrá fundar:
Kristján Logason ljósmyndari og ljóðamaður ætlar að koma á fundinn og segja frá sjálfum sér og því sem hann hefur tekið sér fyrir hendur í gegnum tíðina, meðal annars selt allt og ferðast og ljósmyndað.
Heimasíður Kristjáns má skoða hér og einnig hér
Hlé
Eftir fund skoðum við innsendar myndasögur félagsmanna. Þar sem félagsmenn áttu að setja saman myndasögu í 4-5 myndum.
Sjá tilkynningu:
„Nú eruð þið hvött til þess að taka fyrir smá ljósmyndaverkefni fyrir næsta Fókusfund þriðjudaginn 28. apríl.
Búið til myndasögu með ljósmyndum, 4-5 myndir að hámarki. Myndasagan verður að hafa byrjun, miðju og endi. Nú er bara að leggja höfuðið í bleyti og láta hugmyndarflugið ráða.
Þegar myndasagan ykkar er tilbúin eruð þið hvött til þess að senda hana í tölvupósti á
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
myndirnar þurfa að vera í stærðinni 1024 pixlar á langhlið og í JPG formi. Myndirnar þarf að senda í seinasta lagi mánudaginn 27. apríl fyrir miðnætti.
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega sendið þær á sama netfang og verð ég í sambandi. Við förum svo yfir árangurinn á næsta Fókusfundi 28. apríl.“
Umsjón fundar: Kim Mortensen |