|
Ljósmyndaverkefni fyrir næsta Fókusfund |
|
|
|
|
Skrifað af Kim Mortensen
|
|
miðvikudagur, 15 apríl 2009 |
Nú eruð þið hvött til þess að taka fyrir smá ljósmyndaverkefni fyrir næsta Fókusfund þriðjudaginn 28. apríl.
Búið til myndasögu með ljósmyndum, 4-5 myndir að hámarki. Myndasagan verður að hafa byrjun, miðju og endi. Nú er bara að leggja höfuðið í bleyti og láta hugmyndarflugið ráða.
Þegar myndasagan ykkar er tilbúin eruð þið hvött til þess að senda hana í tölvupósti á
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
myndirnar þurfa að vera í stærðinni 1024 pixlar á langhlið og í JPG formi. Myndirnar þarf að senda í seinasta lagi mánudaginn 27. apríl fyrir miðnætti.
Ef þið hafið einhverjar spurningar þá endilega sendið þær á sama netfang og verð ég í sambandi. Við förum svo yfir árangurinn á næsta Fókusfundi.
Ljósmynda kveðjur
KiM
|