|
Fókusfundur 14. apríl - fundarboð |
|
|
|
|
Skrifað af Kim Mortensen
|
|
laugardagur, 11 apríl 2009 |
|
Næsti Fókus fundur er Þriðjudaginn 14. apríl í Faxafeni 12 húsnæði Skákfélags Reykjavíkur og hefst hann kl. 20:00. Þetta er afmælis fundur Fókus en fyrir 10 árum nánar tiltekið 11. apríl 1999 komu nokkrir áhugasamir ljósmyndarar saman og stofnuðu Félag áhugaljósmyndara, Fókus.
Dagskrá fundar:
Rifjum upp sögu Fókus í máli og myndum, saga Fókus rakinn og hvert stefnum við og hver verður framtíð Fókus.
Að sjálfsögðu verður afmælisterta í boði Fókus og eru allir félagar Fókus hvattir til að fagna með okkur þessum áfanga. Þetta verður óformlegur fundur þar sem við ætlum að njóta góðrar stundar saman í góðra vina hóp.
Fókusfélagar eru hvattir til að leita í myndasafni sínu og finna myndir úr starfi Fókus og af fókusfélögum. Jafnt gamlar sem nýjar myndir eru vel þegnar. Sendið myndirnar í tölvupósti á netfangið hans Kims
Þetta netfang er varið gagnvart spam pósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
. Stærð myndar þarf að vera 1024 pixlar á langhlið og í JPG formi. Tökum á móti myndum til 11.00 á mánudagskvöld.
Fjölmennum og gerum þetta að eftirminnilegum fundi.
Gott væri að þið gæfuð okkur til kynna hvort þið sjáið ykkur fært að mæta svo hægt sé að áætla hversu margir munu koma, skráið ykkur á spjalli Fókus undir liðnum „Afmælisfundur – hverjir koma?“.
Umsjón fundar:
Gunnlaugur Júlíusson og stjórnin |