|
Fókus var stofnað 11. apríl 1999 og er með aðsetur í Reykjavík. Félagið er opið öllum áhugamönnum um ljósmyndun, jafnt byrjendum sem lengra komnum.
Markmið félagsins er að virkja ljósmyndun sem áhugamál hjá fólki og skapa um leið öflugan vettvang fyrir félagsmenn til að sinna þessu áhugamáli sínu. Til þess að framfylgja þessu markmiði er farið er í ljósmyndaferðir, haldnar ljósmyndakeppnir og ljósmyndasýningar ásamt því að haldnir eru fundir á tveggja vikna fresti yfir vetrarmánuðina en sjaldnar á sumrin.
Þá hittast félagar, ræða saman um ljósmyndun og bera saman bækur sínar. Á fundum eru fagmenn fengnir til að halda fyrirlestra sem og að fyrirtæki halda kynningar á vörum og þjónustu fyrir ljósmyndun. Kynntar eru nýjar vörur, td. nýjar filmutegundir, myndavélar og margt fleira.
Á fundum sýna félagsmenn myndir, hvor heldur sem er á stafrænu formi eða á gömlu góðu filmunum. Félagið er búið tölvu, skjávarpa, stóru sýningartjaldi, hljóðkerfi og slides vél til sýninga sem þessara.
Félagsmenn eiga möguleika á afslætti sem í boði eru fyrir félagsmenn hjá ýmsum fyrirtækjum. Um er að ræða fyrirtæki sem selja ljósmyndavörur og/eða bjóða framköllunarþjónustu eða stafræna vinnslu ljósmynda. Afsláttur er mismunandi milli fyrirtækja á vörum og þjónustu eða allt frá 7 – 40 %. Sjá nánar á heimasíðu félagsins. Menn þurfa að nefna að þeir eru félagar í Fókus til að eiga rétt á afslættinum.
Árgjaldið er 5.000,- kr. sem greiðist í byrjun febrúar á ári hverju. Þeir sem sækja hins vegar um félagsaðild eftir 1. júlí eiga þess kost að greiða hluta af þeirri upphæð eða 3000,- kr. þangað til að það kemur að árgjaldi næsta árs.
Kennitala Fókus: 680499-3149
Reikningsnúmer Fókus: 537-26-16822
Viltu vita meira um félagið? Vinsamlega sendu okkur þá fyrirspurn .
Hefur þú áhuga á að gerast félagi? Vinsamlega sendu okkur þá umsókn um félagsaðild.
Kveðja, stjórn félagsins.
|