Forsíða arrow Gagnasafn arrow Almennar fréttir arrow Selatanga sjóróðramenn
Innskráning
Nýjustu umsagnir
















Bókamerkja
Bókamerkja vefsíðu
Bókamerkja þessa síðu
Setja sem upphafssíðu
Selatanga sjóróðramenn PDF skjal Útprentun Tölvupóstur
Skrifað af Helgi Bjarnason   
fimmtudagur, 12 júlí 2007

Image Ferðanefnd Fókus þótti ástæða til að brjóta upp ferðamátann hjá félaginu. Ákveðið var að gera tilraun með kvöldgöngur einu sinni í viku í júní þar sem myndatökur yrðu aðal viðfangsefnið. Þær hafa haldið áfram, nú hafa verið farnar tvær aukaferðir. Ekki er reiknað með framhaldi á þessu starfi, nema þá einhver detti niður á sérstaklega skemmtilega hugmynd en þá verður gerð atlaga að því og undirtektir kannaðar.

Myndina tók Helga Jörgensen, formaður ferðanefndarinnar, í ferð á Selatanga. 


Ferðirnar eru orðnar fimm og þátttakendur komnir upp í 40, svo þetta hefur lukkast vel. Farið hefur verið í Grasagarðinn í Laugardal, tvisvar í Elliðaárdalinn, í Búrfellsgjá í Heiðmörk og nú síðast á Selatanga og Seltún í Krýsuvík. Eftir þessar ferðir hafa félagar sett margar frábærar myndir inn á vefinn og fengið dóm á þær.

Á Selatöngum var gömul verstöð, þar var bæði reimt og margar drauga- og kynjasögur eru til frá þessum stað. Skálholtsstaður átti ítök þar. Núverandi minjar á Selatöngum eru frá 19. öld en saga er um að róið hafi verið frá 12. öld. Vísa er til um menn sem réru þar eitt sinn:

Tuttugu og þrjá Jóna telja má,

tvo Árna, Þorkel, Svein,

fimm Guðmunda og Þorstein þá.

Þar með Guðlaug, Freystein.

Einara tvo, Ingimund, Rafn,

Vilhjálmur Gesti verður jafn,

Selatanga sjóróðramenn:

sjálfur guð annist þá.

Við Festarfjall var stansað og þar heillar sjórinn mig algjörlega en við vorum þarna rétt um það leyti er sól var að hverfa. Síðan haldið niður á Selatanga, þeir sem voru með höfðu ekki komið þar og var skemmtilegt að leiða þá í allan sannleika um staðinn. Rekaviður og fiskbyrgi eru víða og ryð en sumir í hópnum eru sérstklega áhugasamir um slíka hluti. Síðan var haldið í Seltún en þar náði ég ekki myndum vegna þess hversu skuggsýnt var orðið. Þegar við komum upp á Vatnskarðið blasti við sólarlagið. Heim var ég komin rétt eftir miðnættið svo þetta var gott úthald og menn töluðu um að fara síðan á þessar slóðir á eigin vegum og þá að degi til. Þyrstir í meira myndaefni sem er óþrjótandi.

Helga Jörgensen 

 
< Fyrri   Næsta >

© 2005 | Fókus, félag áhugaljósmyndara | Faxafeni 12 | 108 Reykjavík