|
|
|
|
1. grein.
Félagið heitir Fókus, félag áhugaljósmyndara. Heimili og varnarþing félagsins er í Reykjavík.
2. grein.
Markmið félagsins er að virkja ljósmyndun sem áhugamál hjá fólki og skapa um leið öflugan vettvang fyrir félagsmenn til að sinna þessu áhugamáli sínu. Félagið mun m.a. standa fyrir fundum, sýningum, ljósmyndaferðum, ljósmyndakeppnum, kynningum fagaðila á vörum og þjónustu ásamt samstarfi við fagaðila um ýmislegt varðandi ljósmyndun. Félagið skal halda úti vefsíðu sem m.a. heldur utan um upplýsingar um starfsemi félagsins. Félagið mun skapa umræðuvettvang þar sem skipst er á skoðunum um strauma og stefnur hverju sinni. Félagið skal hafa forgöngu um að fá hagstæð kjör fyrir félagsmenn í viðskiptum við ýmis fyrirtæki sem bjóða upp á vörur og þjónustu á sviði ljósmyndunar. Að jafnaði skulu almennir félagsfundir haldnir aðra hverja viku á tímabilinu september til maí; eða frá og með fyrsta þriðjudegi septembermánaðar að aðalfundi félagsins um miðjan maí.
3. grein.
Félagið er opið öllum sem hafa áhuga á ljósmyndun, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Fullgildir félagar eru þeir sem greitt hafa árgjald til félagsins. Félagsgjald er ákveðið á aðalfundi og skal greitt inn á reikning félagsins í byrjun hvers árs. Nýtt félagsskírteini skal póstsent/afhent til félagsmanna innan tveggja vikna eftir að félagsgjald hefur verið greitt. Félagsmaður sem ekki hefur greitt félagsgjald fyrir 1. febrúar fellur sjálfkrafa af félagaskrá, enda hafi viðkomandi félagsmanni verið send tilkynning þess efnis með minnst viku fyrirvara. Nýir félagar sem koma inn í félagið eftir 1. júlí skulu einungis greiða hluta árgjalds.
4. grein.
Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum lögmæts aðalfundar þess.
5. grein.
Aðalfund félagsins skal halda um miðjan maí ár hvert og skal stjórnin leggja fram endurskoðaða reikninga sem félaginu tilheyra á starfsári stjórnarinnar. Reikningsár félagsins skal miðast við tímabilið frá 1. maí til 30. apríl.
6. grein.
Aðalfund skal boða með a.m.k. 2ja vikna fyrirvara með skriflegri tilkynningu til félagsmanna, eða á annan tryggilegan hátt. Aðalfundur er löglegur ef til hans er löglega boðað. Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til setu á aðalfundi.
7. grein.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1) Ávarp formanns
2) Kjör fundarstjóra og fundarritara
3) Skýrsla stjórnar
4) Reikningar lagðir fram af gjaldkera
5) Umræður um skýrslu stjórnar og endurskoðaða reikninga
6) Reikningar bornir undir atkvæði
7) Lagabreytingar
8) Félagsgjöld ákveðin
9) Kosning stjórnar og skoðunarmanna.
10) Kosning ferðanefndar og sýninganefndar.
11) Önnur mál
8. grein.
Stjórn félagsins skal skipuð 5 mönnum, formanni, ritara, gjaldkera og 2 meðstjórnendum. Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi, formaður sérstaklega, þá ritari, gjaldkeri og síðan meðstjórnendur. Kjósa skal tvo varamenn í stjórn. Á aðalfundi skulu einnig kjörnir tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara. Þá skal aðalfundur kjósa þrjá menn í ferðanefnd og einn til vara og þrjá menn í sýningarnefnd og einn til vara.
9. grein.
Starfstími nýkjörinnar stjórnar hefst strax að aðalfundi loknum. Til þess að stjórnin sé ákvarðanahæf, þarf meirihluta hennar til samþykktar. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundi. Ef atkvæði eru jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum. Stjórnin skal skipuleggja og stýra starfi félagsins milli aðalfunda, og skipa í verkefnanefndir eftir þörfum. Markmiðið með skipun nefnda er að virkja sem flesta félaga til þátttöku í starfsemi félagsins. Erindisbréf skal fylgja skipun nefnda og tilgreina bæði hlutverk og umboð viðkomandi nefnda. Það á einnig við um ferðanefnd og sýningarnefnd. Stjórnin skal kynna áætlaða dagskrá tímabilsins frá september til maí á fyrsta félagsfundi í september ár hvert. Á þeim fundi skal stjórnin jafnframt leggja fram kostnaðaráætlun fyrir umrætt tímabil.
10. grein.
Formaður skal vera í forsvari fyrir félagið út á við, ásamt því að boða fundi og stýra þeim samkvæmt kynntri dagskrá. Stjórnarfundir skulu haldnir eigi sjaldnar en annan hvern mánuð á tímabilinu september til maí. Reglulega stjórnarfundi í september til maí skal skipuleggja samhliða dagskrá fyrir fyrsta félagsfund í september. Formaður skal með tryggilegum hætti boða til annarra stjórnarfunda með a.m.k. 2ja daga fyrirvara ef unnt er. Að lágmarki tveir stjórnarmenn, aðrir en formaður, geta einnig boðað til slíkra stjórnarfunda og þá með sama fyrirvara.
11. grein.
Ritari stjórnar skal skrá fundargerðir aðalfundar, stjórnarfunda og félagsfunda og halda utan um þær fundargerðir, hann skal að auki halda utan um öll önnur skjöl félagsins. Fundargerðir skulu birtar viðkomandi fundarmönnum innan viku frá hverjum fundi. Allar fundargerðir félagsins skulu vera aðgengilegar fyrir félagsmenn. Ritari skal einnig halda utan um allar umsóknir um félagsaðild og viðhalda skrá yfir fullgilda félagsmenn. Ekki er heimilt að afhenda félagaskrá þriðja aðila.
12. grein.
Gjaldkeri félagsins ber ábyrgð á fjárreiðum þess og skal vera prókúruhafi á reikningum félagsins. Öll bókhaldsgögn félagsins skulu vera í vörslu gjaldkera. Til að skuldbinda félagið þarf meirihlutaákvörðun stjórnar með undirskrift gjaldkera eða formanns. Allar meiriháttar fjárskuldbindingar félagsins skal félagsfundur samþykkja og skal til hans boðað á sama hátt og aðalfundar. Með meiriháttar fjárskuldbindingu er átt við að farið sé yfir 50% af áætluðum félagsgjöldum fyrir yfirstandandi starfsár. Gjaldkeri skal afhenda bókhald félagsins til endurskoðunar hjá skoðunarmönnum félagsins a.m.k. 10 dögum fyrir aðalfund félagsins. Rekstrar- og efnahagsreikningar félagsins skulu lagðir fyrir aðalfund félagsins, samþykktir og undirritaðir af bæði gjaldkera og skoðunarmönnum félagsins.
13. grein.
Lögum félagsins verður eingöngu breytt á aðalfundi. Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn félagsins eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund. Með fundarboði um aðalfund skulu fylgja framlagðar tillögur um lagabreytingar. Nái tillaga til lagabreytingar samþykki 2/3 hluta fundarmanna öðlast hún þegar gildi.
14. grein.
Komi fram tillaga um það að félaginu skuli slitið skal hún sæta sömu meðferð og tillaga til lagabreytingar, sbr. 13. gr. Sé tillaga um slit félagsins samþykkt skulu hreinar eignir félagsins renna til Ljósmyndasafns Reykjavíkur.
15. grein.
Almennar reglur um félög og fundarsköp ráða þar sem fyrirmæli skortir í samþykktum þessum.
(Með breytingum sem samþykktar voru á aðalfundi 16. maí 2006.)
|
|
|