|
Skrifað af Helgi Bjarnason
|
|
mánudagur, 14 maí 2007 |
|
Ellefu félagar í Fókus voru í ljósmyndaferð í Færeyjum dagana 4. til 11. maí 2007. Ekið var og siglt vítt og breitt um eyjarnar undir forystu Davíðs Samúelssonar leiðsögumanns og ferðanefndarinnar. Ferðafélagarnir komu heim með full myndakort og myndabanka, harðsperrur í útlimum og höfuðuð fullt af upplýsingum og nýjum upplifunum, auk skemmtilegra endurminninga og kynna við fólk. Mun það taka drjúgan tíma að vinna úr öllu þessu.
Staldrað var við á tugum tökustaða á þessum sjö dögum. Einn þeirra er Kirkjubær þar sem þessi mynd er tekin en Kirkjubær er einn af fjölsóttustu ferðamannastöðum í Færeyjum. Í gömlu baðstofunni borðaði hópurinn kvöldverð hjá Jóannesi Paturssen og fjölskyldu.
|